Ég og Vala systir mín vorum lengi vel saman í herbergi sem litlar stelpur og hún hefur sjálfsagt oft verið orðin þreytt á bröltinu í þessari óþolandi litlu systur. Mér er svo minnisstætt ráðið sem hún gaf mér eitt kvöldið sem ég gat ekki sofnað:
Hún sagði mér að ímynda mér RISA stórt jarðaber, nú eða epli hvort sem að mér þætti betra. Ávöxturinn væri fyrir utan húsið okkar og ætti að vera það stór að ég þyrfti stiga til að klifra upp í það og ég mætti svo borða eins mikið og ég vildi...það væri líka alveg rosalega gott bragð af þessum ávexti og þetta hljómaði allt ævintýralega skemmtilegt.
Enn þann dag í dag hugsa ég um ávexti þegar ég get ekki sofnað- en undanfarna daga hafa jafnvel ekki allir heimsins ávextir bjargað mér undan þessum vandræðum. Ég er þó ekki farin að örvænta því eitt kvöldið á næstu dögum hef ég trú á því að ég þetta takist hjá mér!
Ég þarf svo að fara að mynda öll handavinnuverkefnin sem ég hef unnið að þetta árið- hef verið óvenju afkastamikil svona miðað við aðrar annir.
HP
Sæl. Kannast við þetta "svefnvandamál" frá dóttur minni. En eftir að hún fór að taka magnesíum duftið sem maður leysir upp í heitu vatni(fæst í Lyfju) þá bæði gengur henni betur að sofna og sefur betur :)
ReplyDeleteEin frá Ísafirði :)
Hver frá Ísafirði ert þú ??...forvitni haha :)
ReplyDeleteEn gaman að sjá nýtt blogg hjá þér systir mín, og æðislega var ég nú góð við þig þarna í fyrndinni að gefa þér svona gott ráð. Ég meina við vitum báðar að ég var ekkert alltaf góð við þig en þarna átti ég nú allavega eitt gott móment..hihi.
Knús..hlakka svo til um páskana !!!