Wednesday, February 20, 2013

Heiðubúningurinn

Ég ákvað að skella gömlu kommóðunni minni í ögn "Heiðulegri" búning:

Svona leit hún út í upphafi

Hér er ég búin að pússa hana alla upp

Og hér er hún tilbúin...háglans blá og afskaplega "Heiðuleg"

Eftir að ég var búin að pússa hana þá grunnaði ég með hvítum grunn 1x umferð og svo voru það 2x umferð af blárri málningu. Liturinn heitir "Ingrid Bergman" og ég keypti hann hjá Slippfélaginu.
Ég málaði höldurnar líka með sama bláa lit en hef þó í huga að fá mér e.t.v. nýjar höldur. Veit nefnilega um búð í Köben sem selur krúttaðar höldur og þar sem ég á leið til borgarinnar á næstunni þá ætla ég að kíkja við og skoða höldurnar :)
HP

2 comments:

  1. Geggjað flott breyting :) kemur vel út.

    ReplyDelete
  2. Æðisleg :)
    Ég á einmitt svipaðan bláan lit sem ég hef hug á að setja á kommóðu.
    En hvernig grunn notaðiru? ég er nefnilega alveg græn í svona "oppussing"...
    Knús og kossar!

    ReplyDelete