Kjóll: Þessi er frá merkinu Birna og er í miklu uppáhaldi hjá mér. Amma mín Iðunn gaf mér hann þar sem hún gat ekki notað hann lengur sjálf, ég hef notað hann mjög mikið og þetta er flíkin sem ég fer alltaf í þegar ég veit ekkert í hverju ég á að vera !
Við fjölskyldan skelltum okkur til Reykjavíkur í dag- versluðum í matinn, skiptum jólagjöfum og svo var það toppurinn....að fá að knúsa mína heimsins bestu Völu litlu og hennar fjölskyldu smávegis! Meiri bömmerinn að við systurnar skildum þurfa að elta kallana okkar á sitthvorn útnára þessa lands.
HP
Hahaha útnára... já nákvæmlega!!
ReplyDeleteFögur ertu að vanda elskuleg ;)