Blómakjóll: Gina Tricot
Kögurjakki: Lakkalakk
Kann afskaplega vel að meta þennan jakka- kögur er algjörlega málið :)
En að öðru ( því ég geri jú margt annað en að klæða mig í kjóla)
Ég virðist vera haldin ákveðinni þroskahömlun sem lýsir sér í því að geta með engu móti lært að lykkja saman undir höndum á lopapeysu! Ég hef prjónað ansi margar lopapeysur en samt er alltaf eins og að ég sé að gera þetta í fyrsta skipti og mér finnst það alltaf jafn ógeðslega erfitt og leiðinlegt!
Var að ljúka við þessa peysu sem var jólagjöf handi mági mínum:
Er svo hér með komin í pásu í prjónapeysugerð þangað til í ég nenni að fara að læra að prjóna þær ofan frá og niður (þá þarf maður víst ekki að lykkja saman!)- Ég held mig bara við heklið og smærri verkefni þangað til:)
HP
No comments:
Post a Comment