Jú jú… ég fór í dag í jússufötunum mínum útí búð og klæddist klossum við! Til nánari útskýringar þá eru "jússufötin" ekki mikið fyrir augað en afskaplega þægileg. Mín bæta á mig a.m.k. 10 kílóum og voru núna ekki bara ljót heldur líka útgubbuð. Ég keypti kók og súkkulaði í búðinni og unnar kjötvörur í kvöldmatinn- þegar ég stóð við búðarborðið og varð litið niður á klossana mína fannst mér í augnablik eins og ég þyrfti að kaupa mér pakka af sígarettum til að fullkomna jússið!
Litli dúllubossinn fékk nafnið sitt um síðustu helgi:
Ég er ekki mikið fyrir að skreyta, hvorki um hátíðar né í veislum ( mér finnst svo hroðalega leiðinlegt að taka niður skraut). En þessar flöskur voru sko skraut að mínu skapi. Lét gera þessa miða fyrir mig og límdi þær á litlar kókflöskur, einfalt og skemmtilegt :)
Í mömmu sinnar fangi vill litli ljúfur helst lúra öllum stundum
Hann er verða svo stór og farin að ræða málin við sína menn á leikteppinu
Áki safnar fellingum og móðir reynir að fækka þeim, þesi mynd var tekin þegar við mæðgin vorum að gleðjast yfir því að mamman passaði aftur í gallabuxur ( reyndar þær stærstu sem hún á, en samt klárlega tilefni til myndatöku)
Ég er svo mikil hjarðvera að ég varð að fara að sulla á mig Essie naglalakki eftir að íslenskir netmiðlar fylltust af lofum um það. Þessi mynd sýnir ekki alveg rétta mynd á þessu sjúklega fallega appelsínurauða lakki sem svo sannarlega stóðst væntingar- helst endalaust vel á.
Hver veit nema ég fari svo að koma mér úr jússugallanum og skella mér í kjól til að sýna ykkur- ég verð fyrst að semja um svefnfrið við hann Áka litla ;)
Heiða

No comments:
Post a Comment