Ég hef þó verið ansi dugleg að klæða mig og bumbuna í kjóla- bara ekki alveg jafn dugleg að taka myndir.
Bumba í kjól 33 vikur
Bumba í kjól 35 vikur
Ég hef svo verið ansi iðin við handavinnuna undanfarið og ætti vonandi að geta farið að monta mig af fullkláruðum verkum innan skamms :)
Þetta árið er markmiðið að vinna á eitthvað á öllu því garni sem ég á hérna í hillunni minni og það gengur bara ágætlega. Ég ætla að reikna mig í grömmum- það sem ég bý til úr eldra garni vs það sem ég bý til úr garni keyptu þetta árið.
Ég fékk að gjöf slatta af mandarin petit afgöngum sem ég ákvað að hekla úr smekki. Hafði þá bæði í "stráka" og "stelpu" litum og get svo notað það sem mér hentar og gefið aðra.
Samtals =120 gr af eldra garni
Ofurkrúttað ungabarnasett
Peysa samtals = 110 gr af nýju garni
Buxur samtals = 114 gr af eldra garni
Staðan í grömmum því svona eins og er:
Unnið úr eldra garni = 234 gr
Unnið úr nýju garni = 110 gr
Meira síðar….
Heiða


No comments:
Post a Comment