Thursday, January 8, 2015

Dagur 7

Kjóll dagsins í dag.. ég held að það sé rétt hjá mér að þessi sé núna með í þemanu þriðja árið í röð:




Kjóll: ASOS
Ullarsokkar: Geysir

Kjólarnir mínir eru mikið til allir frá sama stað; H&M, COS, ASOS og svo 
núna þeir nýjustu frá King Louie. 

Þar sem ég er í því að taka því rólega þessa dagana þá var upplagt að fara í ullarsokka við kjól dagsins, á myndina vantar eiginlega bara tebollann og prjónana ( svo ekki sé minnst á vínarbrauðið sem ég gúffaði í mig með tebollanum).

Heiða

2 comments:

  1. Svo fín!!
    Mest var ég samt að velta vöngum yfir breytingunum heima hjá þér og í hvaða spegil þú værir eiginlega að horfa í og taka þessa mynd haha...skilekkertíþessu.

    ReplyDelete
  2. Sæta bumba! Ég er auðvitað að fylgjast með þó ég sé sannarlega löt að skilja eftir spor.

    ReplyDelete