Kjóll dagsins:
Kjóll: King Louie- Amsterdam
Peysa: King Louie-Amsterdam
Sokkabuxur: H&M
Þegar ég fór til Amsterdam í haust þá fann ég þessa búð sem heitir King Louie- ég var algjörlega dolfallin og verslaði alveg helling. Allt mjög litríkt og munstrað og einstaklega mikið af blómakjólum og pilsum. Ég var svo heppinn að vera mjög hrifin af "last season" vörunum þeirra sem að voru á 50% afslætti- þið eigið eftir að sjá meira frá þessari búð í janúar :)
Ég er algjörlega manísk þessa dagana það er svo margt sem mig langar til þess að prjóna og hekla, nú þegar búin að skrá mig í eitt samprjón og langar í samhekl líka og námskeið að auki- eitthvað verð ég að velja og hafna.
Ég keypti prjónabók handa sjálfri mér í jólagjöf og hún er alveg brjálæðislega falleg:
Ég er byrjuð á forsíðupeysunni á sjálfa mig- þó ætla ég ekki að hafa hana svona útprjónaða með þessum ferningum heldur hafa munsturbekkinn og svo einlita niður. Þessi flík á kannski ekki vel við það hvað mig langar að gera margt þessa dagana, hún er nefnilega úr mjög fínlegu garni og prjónuð á prjóna nr 3 :)
Dökkblátt og grátt alpaca garn sem ég átti til á garnlagernum mínum.
Góðar stundir
Heiða






No comments:
Post a Comment