Wednesday, August 27, 2014

Lífið

Alltof langt síðan síðast!
Margt og mikið búið að gerast undanfarnar vikur og ég verið eitthvað lítið stemmd í að setjast niður og skrifa og líka tekið óvenjulega fáar myndir.
Eitt af því sem átti sér stað á þessum tíma var þrítugs-afmælið mitt :) Átti dásamlega afmælisdaga-  já í fleirtölu því ég tók mér tvo daga í veisluhöld fyrst kökur og kruðerí og svo partý fram á rauða nótt.

Ég ætla að láta nokkrar myndir frá undanförnum vikum fylgja með:

Þessa litla dásemd hafði laumað sér í mömmuholuna eitt kvöldið

Svo finnst henni alger óþarfi að skilja eftir pláss fyrir mömmu og pabba!

Ég fékk truflað góðan morgunmat í rúmið á afmælinu mínu!

Bakaði nokkrar hnallþórur fyrir afmælisgesti

Ég fékk þennan fína NotKnot púða í afmælisgjöf- Öddu Sóley finnst hann betri sem hattur !

HP

No comments:

Post a Comment