Ég mundi það sérstaklega í dag þegar ég kom heim úr vinnu- börnin eru nefnilega komin í sumarfrí en ég ekki.....
Hádegismatur og kaffitími á víð og dreif um eldhúsið, dót út um allt hús, fína fína fallega heklteppið mitt úti í miðju drullumalli ( ég meina það má ekki óhreinka dúkkurnar!)
En sumarið er víst tíminn!
En það er ekki eintómur sorti í huga mér...sei sei nei. Ég á ekkert að vera að væla, nýkomin heim af norðurlandinu. Eintómur gleðskapur á stúdentsafmæli með brjálæðislega skemmtilegu fólki og svo ættarmót heima í öndvegi íslenskra dala.
Dásamlegi MA bekkurinn minn
Þessar vinkonur voru svo hamingjusamar með að vera sameinaðar
Svo lögðu þessar þrjár af stað í roadtripp
Það var svo hroðalega táfýla af Sissú að við skylduðum hana út í næstu á með sjampúbrúsa í hönd ;)
Óvissuferðarvinkonur- ég var í bleika liðinu.
Ég er semsagt ekki dauð úr öllum blogg-æðum!
Aftur von bráðar
HP



Mikid er gaman ad thu ert farin ad tja thig å veraldarvefnum aftur!!! ;)
ReplyDeleteOg ps... eg mun lifa å thessari ferd i margar vikur!!!
kyss og klem
ps. eg a mun betri hairday i dag ;) hahah