Ég tjaldaði öllu til og notaði alla tíu þumalfingurna í að föndra skraut og skreyta kökur:
Þegar afmælisgestir mættu á svæðið þá beið þeirra poppkorn í pappaboxum og útileikir
Svo var búið að skreyta með heimagerðum fánalengjum og ferskum blómum
Mér tókst að gera afmælisköku sem lítur ekki út eins og kúkur. Ég er eiginlega fáránlega stolt af þessari köku- er að hugsa um að sækja um inngöngu í ofurmömmuklúbbinn!
Þar sem ég á það til að ofmetnast og ég var "on fire" þá urðu kökurnar tvær
Borðdúkurinn var fremur langt frá því að ná yfir allt borðið, enda slíkur munaður algjörlega ofmetin.
Í lok veislunnar buðum við svo uppá kúluís í brauðformi enda veðrið með besta móti. Afmælisstúlkan var ansi sátt með þetta.
Kúlúís með hjartaskrauti
Já það má segja að ég hafi farið nokkur level upp í afmælisveisluhaldi sem hingað til hafa einkennst af skúffuköku með glassúr, borinni fram í ofnskúffunni og veislusetti í boði landsbankans.
Ég kannski stefni á þetta level a ca. 7 ára fresti!
HP








Þetta hefur nú tekist ansi vel hjá þér.
ReplyDeleteKv.
Bjarnveig
Til fyrirmyndar afmælisveisla.
ReplyDeleteFrábær afmælisveilsan og æðislegar kökurnar! Það gat nú líka ekki verið að kona með jafnmyndarlega handavinnufingur gæti ekki töfrað fram fagrar kökur ;)
ReplyDeleteKyss og klem, Lára
Glæsilegt hjá þér ! :)
ReplyDeleteVerð að spyrja hvar þú fékkst borðbúnaðinn ;)
Bestu kveðjur
Ósk
Ekkert små flott veisla hja ther ofurmamma :)
ReplyDeleteÞetta er ótrúlega flott! Glæsileg veisla greinilega ;) og sætar skotturnar þínar :)
ReplyDelete