Dásamleg primaloft úlpa frá 66 norður og þarna er ég líka í nýjum gallabuxum frá LEE
Þetta snið á buxum heitir Skylar, þær ná ansi hátt upp í mittið og eru þröngar niður. Ég tel þær henta sérstaklega vel konum sem eru með svolítinn rass og mjaðmir.
Þarna hef ég svo algjörlega fundið mitt snið í gallabuxum!
En að öðru... ég skrapp til Þýskalands í desember í fyrra og við þá ferð gerðu vinkonur mínar ansi mikið grín að ákveðnu skóhilluveseni á mér. Sjálfri fannst mér það alveg normalt að kaupa skóhillu erlendis og drösla henni heim með mér í flugi.
Ég hef fengið margar áskoranir um að sýna myndir af hillunni "frægu". Málið er þó það að hillan er ekkert sérstök í útliti- en hún er praktísk. Það er nauðsynlegt þegar skópörin eru orðin eins mörg og raun ber vitni.
Hér er hún!
HP



Oh my... ef ég væri þjófótt myndi ég stela þessari úlpu og mögulega buxunum líka!!!
ReplyDeleteEn hilluna hef ég ekki þörf fyrir *snöktsnökt* þar sem skópörum þessarar frúar fer ört fækkandi og er bráðum hægt að telja bara á fingrum annarar handar...