Monday, February 10, 2014

Hrakfarir 2013

Tæknitröllið ég hef setið sveitt við undanfarið að læra um undur tækninnar. Hef lært mun betur á fínu tölvuna mína en kunnáttan kostar vinnu því ég sé svo margt sem ég hef verið að gera vitlaust. Ég hef t.d. verið að fara í gegnum allar myndirnar mínar og skipuleggja þær upp á nýtt á rétta staði ( mér leiðist nú aldrei að skipuleggja!)

Ég er að vinna mig í gegnum síðasta ár og það mætti halda að ég hafi lítið gert annað en að slasa mig, sljóvga mig, sólbrenna og....

Ég var ansi sljóvguð eftir rannsóknir á meltingarvegi

Ég dúndraði hurðinni á vinnubílnum beint í smettið á mér.

Ég tanaði!!

Ég varð ógeðslega þunn eftir gott djamm í Köben

Ég missti ofnskúffurnar á tærnar á mér...viku fyrir Laugavegsgöngu!

Ég fékk aðstoð við sáraumbúnað vegna hælsæris

Ég náði mér í alveg keppnis blöðrur á tærnar

HP




1 comment:

  1. Pínu hrakfallabálkur bara, ekkert að því. Jafnvel að það sé í ættinni bara ;)

    ReplyDelete