En ég hef sko allt annað en setið auðum höndum og það verða þó nokkrir mjúkir jólapakkar frá Espiflöt þetta árið. Mér finnst svo gaman að búa til eitthvað í gjafir handa öðrum. Þar fer ekki öll vinnan i handverkið sjálft heldur legg ég alúð í að velja hvað á að gera handa hverjum, úr hverju, hvaða litir og hvernig á að raða þeim saman.....
Þessa helgina var ég einmitt í því að ganga frá endum, þvo prjónlesið og leggja það til - hér má sjá afraksturinn:
Þegar þessu var öllu lokið áttaði ég mig á því að ég væri einungis með eitt verk á prjónunum, þessa lambhúsettu eftir uppskrift sem hægt er að nálgast frítt inná tinna.is:
En þar sem að mér líður yfirleitt best með nokkur verkefni í gangi í einu þá opnaði ég koffortið og náði í eitthvað af því garni sem til er og náði svo í nokkrar vel valdar bækur og hófst handa við að velja uppskrift:
Ég hugsa að eftir smá stund þegar ég er búin að vinna SÍÐASTA skólaverkefnið þá fitji ég upp á peysu úr plötulopanum sem þarna er á mynd!




No comments:
Post a Comment