Sunday, September 8, 2013

Sunnudagur

Ég skráði mig í fjarþjálfun á dögunum og ætla mér að fylgja æfinga og matarprógrammi næstu vikurnar. Í þessu prógrammi eru engar öfgar heldur bara verið að huga að bættum lífsstíl og betri heilsu á heilbrigðan hátt. Það er nú heldur ekki svo að ég sé í mjög slæmu líkamlegu formi eða ég sé mjög ósátt við það sem ég sé í speglinum. Yfirhöfuð þá er ég ánægð með mig hvort sem það eru nokkur kíló til eða frá og sjálfstraust mitt stendur ekki og fellur eftir því hvað tölu vigtin sýnir mér. Það er þó ansi praktískt atriði að halda sér í sömu buxnastærðinni! Sérlega ef maður vinnur í fataverslun sem selur flottustu buxur landsins og verður því ( hóst hóst) nauðsynlega að eignast allar týpurnar.

Í dag voru þægindin í fyrirrúmi í klæðaburði og greina mátt ögn af 90´s þema:

Háglans leggings frá Urban Outfitters
Niðurhnepptur kjóll með "skater" sniði frá ASOS
Stutt peysa frá Topshop
Skór: Vagabond

Ég er svakalega hrifinn af þessari einföldu peysu og langar til að prófa að prjóna sjálf eitthvað þessu líkt

Svo er ég agalega montin að sýna ykkur smá innsýn í nýju rósirnar sem við erum að rækta á Espiflöt, þetta eru svokallaðar spray rósir og þar eru margir knúppar á sömu greininni. Mér finnast þær afskaplega fallegar og vona svo sannarlega að markaðurinn taki vel á móti þeim :)



Hér má sjá appelsínugular og rauðar spray rósir saman í vasa


Eruði að sjá þetta? Svoooo fínar!

Þessi pía var ekki alveg jafn fín eftir vinnudaginn:


Vann svo sannarlega fyrir kaupinu mínu í dag!
Er það eitthvað við útlit mitt sem gefur það tilkynna að ég sé mjög góð í stærðfræði? og geti á örskotstundu sagt til um verð á 7 mismunandi vörum í erlendum gjaldmiðli, og já líka hversu há upphæð 15% af því sé...í dollurum....kannski bara evrum líka!

HP


1 comment: