Monday, September 30, 2013

Helgin...

Helgin okkar var ofboðslega ljúf og góð....
Hún innihélt meðal annars þessar stórglæsilegu blómaskreytingar:



Mikið sem mér fannst gaman að skoða þessar fallegu skreytingar :)

Við ákváðum líka að taka okkur bíltúr og "taka túristann á þetta" og leyfa stelpunum að sjá Strokk skvetta úr sér á Geysissvæðinu:


Snúllurnar hennar mömmu sinnar!
Það kom svo reyndar fljótlega í ljós að vinnualkinn mamman getur ekki verið í svona lítilli fjarlægð frá vinnustaðnum því þá dettur hún á kaf í vinnu um leið. Ég hef nú verið sett í nálgunarbann á fríhelgunum mínum ;)

Lilja Björk fékk svo heimanám í dag, hún á að teikna mynd og skrifa sögu. Hún er með ákveðnar skoðanir, þetta á ekki að vera falleg saga sem fólk vill mikið vera að hugsa um,  heldur skemmtileg og fyndin:


Hún ætlar því að skrifa sögu um Grétar Nökkva frænda sinn sem er einmitt skemmtilegur og nær með ofsafengnum fýluköstum að vera alveg svakalega fyndinn!
Ég er mjög spennt fyrir að fá að vinna þetta verkefni með henni næstu daga og get vart beðið eftir að fá að heyra framhaldið af þessari sögu....

HP

2 comments:

  1. Það býða nú fleiri spenntir eftir framhaldinu.
    Kv.
    Bjarnveig

    ReplyDelete
  2. Jiii en skemmtileg og fyndin saga, ánægð með hana Lilju mína. Þarf að sýna Önju þetta líka, við munum bíða spennt eftir framhaldinu :)

    ReplyDelete