Ég var iðin við að hekla enda þá nýbúin að fá nýju heklbókina Maríu í hendurnar :)
Skellti í þessa hettu:
Ég keypti reyndar óvart vitlaust garn í hettuna og þurfti því að samnýta eitthvað sem ég átti og því varð útkoman ekki alveg eins og ég vildi
Hettan er þó vel brúkleg og ég ætla mér því að eiga hana!
Svo náði ég að gera hið ótrúlega... ég og gula peysan sigruðumst saman á "second sleeve syndrome" og peysan er sko komin svona langt á veg:
Ægilega ánægð með þennan framgang....þó reyndar sé enn langt í land!
Klukkan er svo núna hættulega mikið farin að nálgast 10 að kveldi sem er ca. bát tíminn sem ég er komin í beddann þessa dagana. Það þarf nefnilega talsverða orku í það að koma prinsSkessunum tveim á fætur á morgnana og áfram inn í daginn!
HP



Svo fallegt elskuleg! :) Já hér er það meira 21:30 í síðasta lagi... en eigðu góðan dag!!
ReplyDeletekyss og klem :)