Monday, August 26, 2013

Í gær

Í gær var ég hress og kát en í dag er ég lasin og leiðinleg :(

Ég byrjaði gærdaginn á því að baka köku- mér finnst gaman að baka kökur og þær eru yfirleitt ofsa góðar hjá mér. Hinsvegar fer ég yfirleitt hamförum í eldhúsinu líkt og ég hef sýnt myndrænt hér áður og var gærdagurinn enginn undatekning á því. Ég var búin að baka þennan fína marengs og skella rjóma og jarðaberjum á milli þegar ég sá að á þessa hnallþóru vantaði súkkulaði! Skellti innihaldsefnum fyrir gúrme súkkulaðikrem í skál og hrærði vel í...í leiðinni var ég að spjalla við heimilsfólkið og virðist hafa gleymt mér í masinu því áður en ég vissi af var ég búin að skella alltof þunnu kremi ofan á kökuna og herlegheitin ullu í stríðum straumum ofan af kökunni og um allan eldhúsbekkinn. Ekkert gekk að stoppa flóðið ( ég vildi greinilega hafa nóg af kremi!).
Ljóst var að erfitt yrði að ferja kökuna til höfuðborgarinnar en ég var ekki á því að gefa þetta eftir og skellti handklæði í fangið á mér og hélt á kökunni alla leið- ég var södd þegar til borgarinnar kom því ég var sífellt að reyna að halda í við að súkkulaðiflóðið dreifðist um allan bíl!
Kakan í flutningum ;)

Ég ákvað að skella mér líka í pæjugallann í tilefni borgarferðarinnar:
Skórnir sjást ekki vel en þeir eru himinháir en ótrúlegt en satt ótrúlega þægilegir. Ég á í ákveðnum erfiðleikum með hæla- finnst háir hælar svo fínir en er ekki alveg jafn viss um hvernig mér líkar við sjálfa mig í þessari hæð!

Ég er með ákveðið fettish fyrir rennilása detailum í fatnaði

Svo er það sjalið sem ég prjónaði mér um árið....verð að setja það á listann að prjóna nokkur svona í viðbót í fleiri litum. Það er dásamlega mjúkt og þægilegt og ég hef meira að segja nokkrum sinnum verið spurð að því í vinnunni hvort ég sé til í að selja það. Ég er hinsvegar ógeðslega lengi að prjóna og myndi svo sannarlega alltaf verðleggja tíma minn og því myndi sjalið aðeins vera á fárra færi að kaupa!

Ætla að hanga heima í dag og ná úr mér pestinni sem heltekur kroppinn minn.

HP

1 comment:

  1. Væri til í svona sjal í jólagjöf..hint, hint :)
    Megabeib !!

    ReplyDelete