Þvottahúsið var tekið í gegn um helgina en ég á þó slatta eftir ennþá til að gera það að því rými sem ég vil að það sé. Ég eyði talsverðum tíma í hverri viku í það að að þvo þvott, hengja upp þvott, brjóta saman þvott og ganga frá þvotti. Það hefur því lengi verið á stefnuskránni að gera þvottahúsið að stað sem er ágætlega notalegt og nú er það verkefni komið af stað:
Skáparnir í ágætis óreiðu
Morgunkorn, matvara og moppur ( engar áhyggjur ég er ekki að raða eftir stafrófinu!)
Ræstivörur og annað smálegt....allt komið með sinn stað :)
En þá var samt aðalmálið eftir! Hillurnar sem safnað hafa endalausu magni af drasli og bekkurinn sem átti alltaf að nýtast til að brjóta saman þvottinn....eruði ekki að sjá það gerast??
Allt skal eiga sinn stað
Bekkurinn sést reyndar ekki vel en ég sagt ykkur það að núna verður ekkert mál að brjóta saman þvottinn á honum :)
Njótið lífsins elsku þið!
HP







Lítur vel út, held ég ætti að taka þig mér til fyrirmyndar
ReplyDeleteNjóttu sjálf elsku þú :)
ReplyDeletep.s. gerir þú þig út ? vantar skipulags og innanhúshönnuð til mín ;)
Geturu komið til mín næst :)
ReplyDeletexxx Lára