Wednesday, June 19, 2013

Þar kom að því!

Ég hef svo sannarlega ekki verið í bloggstuðinu undanfarið...hélt á tímabili að ég væri búin að glata þessu en viti menn ég tel mig hugsanlega vera að ná að rífa þetta upp úr ræsinu.

Ég hef verið eitthvað svo óskaplega þreytt og illa fyrirkölluð undanfarið og ekki fundist ég hafa alveg nægjanlega stjórn á lífinu.... því fannst mér það alveg upplagt að fara að skipuleggja það sem ég get haft stjórn á :)

Réðst á búrskápinn og tók hann algjörlega í gegn. Ég er alveg viss um það að þó að ég hafi keypt örfáa dalla til að geyma innvolsið í þá mun þetta á endanum skila sér í sparnaði. Þegar að allt á sinn stað og ég sé hvað er til skápunum minnka líkurnar á því að vörurnar renni út eða að ég kaupi aftur það sem ég á nú þegar til. Á næstunni ætla ég svo að gera það sama við þvottahúsið, baðherbergið og hinar ýmsu hirslur heimilisins. Hver veit nema ég ráðist á ruslaskúffuna?

Ég ætla að leyfa ykkur að fylgjast með þessu sem og öðrum breytingum sem ég hef í huga hér heima. Einnig á nú til efni í nokkrar færslur til að sýna spjarirnar sem ég keypti í Köben og handavinnunna sem  loksins er komin af stað aftur eftir mánaðarhvíld :)

Hann var ekki fýsilegur skápurinn...

...og ekki voru skúffurnar skárri! 


En eftir hreingerninar, tiltekt og smá föndur þá varð þetta útkoman

Skápurinn klár

Mér fannst ansi gott að geta fengið lánaða label-maker vél til að fullkomna skipulagið :)

HP

2 comments: