Svo gerðist ég dugleg og eldaði mér nesti fyrir vikuna, kjúlla og meðlæti sem ég skipti niður í nokkur box sem ég get svo gripið með mér í vinnuna. Ég er nefnilega þannig af guði gerð að ég virðist nánast aldrei finna til svengdar og get gleymt að borða heilu og hálfu dagana ef ég hef mikið að gera, skil svo ekkert í því af hverju ég er orðin skapvond og orkulaus!
En eftir þessa hollustu eldamennsku vildi ég ekki ofgera mér í hollustunni ( ég meina ég var sko líka búin að fara út að hlaupa! ) þannig að mig langaði í eitthvað svolítið sveitt í kvöldmatinn og ákvað að skella í gúrmei samloku. Ég studdist við uppskrift af matarblogginu hennar Bjarnveigar frænku minnar, sem má finna HÉR. Ég breytti bara og bætti eftir því sem mér hentaði :)
Byrjaði á því að skella svolitlu af sætu sinnepi á samlokubrauð
Setti svo ost og góða skinku ofan á sinnepið
Pískaði saman 4 egg og smá aromat útí
Velti samlokunum uppúr eggjahrærunni og skellti þeim svo á pönnu sem smávegis af smjöri
Borið fram með Piccolotómötum og brokkolí
Hafiði smakkað nýju Piccolo tómatana frá Friðheimum? Ef ekki þá hlaupið núna af stað út í næstu verslun og náið ykkur í dall af þessari dásemd!
Verði ykkur að góðu :)
HP




Algjör snilld svona eggjabrauð, amma steikti oft svona brauð þegar ég kom úr fjallinu og var alveg orkulaus eftir að hafa skíðað allan daginn :)
ReplyDeleteHún steikti með því banana og epli sem brögðuðust ekki síður :)