Monday, May 13, 2013

13.maí

Jæja
Ekki tókst þemað alveg þennan mánuðinn... ég veiktist og hafði algörlega enga orku í annað en að mæta í vinnuna og svo heim í það að gera algjörlega ekkert!
Ég hef varla sinnt húsverkum (þvottahúsið ber þess merki!), ekki getað farið út að hlaupa og verið svona vel yfr meðallagi skapvond!
En ég er búin að vera hress í dag og því ber að fagna!

Ég á hér nokkrar myndir frá síðastliðinni viku sem ég ætla að deila með ykkur í dag:

Ég fór í heimsókn í "showroomið" hjá 66 Norður og stóðst ekki mátið að skella mér í þessa fallegu appelsínugulu regnkápu. Hún er úr sama efni og pollagallarnir gömlu góðu... ég held hreinlega að ég verði að eignast svona kápu!

Ég er afskaplega hrifinn af appelsínugulum lit og þessi Monki bolur er því í talsverðu uppáhaldi- ásamt þessum brjálæðislega þægilegu buxum sem ég fékk í Lindex.

Svo stenst ég ekki mátið að skella inn mynd af þessari fallegu slá sem er glæný úr smiðju snillingana hjá Farmers Market, hún er létt og lipur og verður tilvalin til að henda yfir sig á svölum sumarkvöldum og njóta kvöldsólarinnar :)

HP


1 comment: