Stundum langar mig að hætta að vinna til að geta heklað allan daginn. Þennan vetur sem nú er að líða hef ég verið sérlega iðinn og það má sjá á heimilishaldinu- drasl hér og þar og allsstaðar og rykhnoðrarnir hlaðast upp.
En það er bara ekki hægt að vinna 120% vinnu, halda heimili, eiga börn og vini, þrífa húsið og gera handavinnu! Því valdi ég að sleppa mestmegnis þessu með þrifin og tiltektina- svona í smátíma allavega :)
Uppáhaldshillan mín í bókahillunni- prjónabækurnar!
Ps. ég passa alveg að halda fjölskyldumeðlimum hreinum með hjálp þvottavélarinnar!
HP
Sko vinnuveitendur ættu klárlega að vera með svona þrifkonustyrk..hahaha
ReplyDelete