Saturday, January 19, 2013

19.janúar

19.janúar og kjóll dagsins:




Kjóll: Warehouse
Sokkabuxur: Cobra
Skór: Keyptir í Bossanova

Mér líður pínu eins og ég sé ein af þessum 17 ára stelpum sem eru sílfellt að pósta myndum af sjálfri sér á fésbókinni með einhverjum af eftirfarandi merkjum #Sæd#kjút#baby#!

En sem betur fer geri ég annað en að klæða mig í kjóla! í dag hef ég staðið sveitt í eldhúsinu að baka fyrir afmæli litlunnar minnar. Adda Sóley verður nefnilega 3 ára á þriðjudaginn og við ætlum að halda smá veislu á morgun af því tilefni. Mér finnst reyndar ótrúlegt að hún sé strax að verða 3 ára... líður eins og það séu bara nokkrir mánuðir síðan hún skaust í heiminn á ógnarhraða!

Hér má sjá smá sýnishorn af afurðum dagsins:


Mér finnst yfirleitt mjög gaman að elda og baka, það er að segja þegar ég get gefið mér tíma til þess. Hinsvegar má með sanni segja að ég sé "Hamfarabakari" ég get með hreinni samvisku sagt að flest það sem ég bý til bragðast vel en eldúsið verður alltaf eins og að þar hafi átt sér stað styrjöld! Mig langar svolítið að vera ein af þessum með öll hráefnin mæld og tilbúin  hvert í sinni skálinni..... en svona var ástandið hjá mér í dag:

Instagram náði ekki einu sinni að fegra þetta!

HP

2 comments:

  1. Hvað er í þessari KitKat köku lýst agalega vel á hana.
    Það er bara í uppstillingum sem allt er svona spikk og span í eldhúsinu, enda er bara enn meira uppvask þegar verið að mæla í margar skálar.
    Kv.
    Bjarnveig

    ReplyDelete
  2. Iss það er svona hjá öllum. Mmm..langar í afmæli og þú ert alltaf jafn hot (er vandræðalegt að ég noti þetta orð þar sem ég er systir þín??) ... :)

    ReplyDelete