Saturday, December 8, 2012

Ræfillinn....

Já ég hef verið talsverður ræfill undanfarið!
Höfuðverkur búin að plaga mig í talsverðan tíma, hann fór svo að aukast töluvert og því fylgdu taslverðar sjóntruflanir. Tvísýni, svimi og þrýstingur líkt og bak við augasteinana. Mér stóð ekki alveg á sama og var þar að auki orðin krónískt leiðinleg verandi með þennan höfuðverk alltaf hreint!
Eftir nokkrar læknaheimsóknir, myndatökur, röntgen, þukl og káf kemur í ljós að um umtalsverða bólgu í hálsi er að ræða og svo mikil að hún þrýsti á sjóntaugina með fyrrgreindum afleiðingum.
Meðferð: tíðar heimsóknir til kírópraktors og maxaðir skammtar af bólgueyðandi! Auk þess sem að jákvætt hugarfar. hvíld og góðar æfingar inn á milli geta án efa hjálpað talsvert :)

Nokkrar myndir....

Þær hafa verið talsvert margar ferðirna í höfuðborgina þessa vikuna

Niðurstöður rannsókna settar upp á myndrænan hátt

Þá er það á hreinu....ég er krefjandi!!

Nýju gleraugun koma ágætlega út á annars þreytulegu andlitinu!

HP

2 comments:

  1. Vonandi gengur batinn vel. Er Kíropraktor eða Osteopraktór á Selfossi eða þarftu til Reykjavíkur.
    Er þá engin handavinna fram að jólum.
    Kv.
    Bjarnveig

    ReplyDelete
  2. Ég er að fara til Kírópraktors í Reykjavík, það er reyndar einn á Selfossi skilst mér en það var svo mikið mælt með þeim sem ég er að fara til að ég ákvað að gera það.
    Handavinnan er tekin mjög rólega, stutt í einu:)

    ReplyDelete