Dagurinn að mestu farið í það að baka köku, taka til, þvo þvott og knúsa Öddu litlu mömmustelpu! Núna mallar svo gúllassúpa í pottinum og gerir góða lykt í húsið.
Eftir að ég eignaðist stelpurnar mínar fór ég að breytast meira úr A-týpu yfir í B-týpu. Því eins mikið og ég elska snúllurnar mínar og hef gaman að þeim þá finnst mér oft svo ósköp gott að eiga tíman fyrir mig á kvöldin þegar þær eru farna að sofa. Ég er því farin að vaka lengur á kvöldin sem gerir það að verkum að það er erfiðara að fara á fætur á morgnana.. meira að segja stundum mjög erfitt og ég get verið ansi morgunfúl!
Nú er ég samt með sjálfa mig í átaki sem felst í því að vakna fyrr á morgnana og vera búin að gera mig tilbúna í daginn áður en stelpurnar vakna....vek þær eftir að hafa mallað dýrindis hafragraut sem við getum svo borðað saman.
Ca. bát innihaldsefni orkugrautsins, stundum eru þarna líka möndlur, sveskjur og/eða fersk ber
Kannski ekki sá allra girnilegasti að sjá en góður er hann!
Á föstudaginn var haldin ársáhátíð garðyrkjubænda á Flúðum, heilmikil hátið, matur og ball. Við buðum öllu starfsfólkinu á Espiflöt að koma og vorum með smá koteilboð heima áður en haldið var á hátíðina
Þetta var alveg hreint ágætis kokteilboð!
HP
:)
ReplyDeleteNamm ekkert smá girnó, en hei ertu komin með "nýja" borðstofustóla ??
ReplyDelete