Friday, November 16, 2012

Hrakfallasagan

Nú er komið að því að ég tel mig tilbúna til að segja hrakfallasöguna mína!
Eins og ég sagði frá hér fyrir nokkru þá ákvað ég að prjóna jólakjóla á stelpurnar mínar. Keypti dásamlegt garn í Litlu Prjónabúðinni ( uppáhaldsuppáhalds búðin mín!).

Kjóllinn fallega röndóttur og prjónaðist vel, ég komin langt með að klára fyrri kjólinn. 
Við hjónin skelltum okkur í bíltúr með börnin og ég í framsætinu að prjóna eins og svo oft áður. Áður en heim er haldið þurfum við að keyra Lilju Björk í afmæli, stoppum fyrir utan og við mæðgur skottumst inn í afmælið á meðan Axel snýr bílnum við. 
Þegar ég sný aftur í bílinn kemur vinur okkar sem var staddur í næsta húsi hlægjandi og spyr hvað þetta hafi nú verið sem dróst á eftir bílnum út götuna og tilbaka?
Já ég get sagt ykkur það að mér var ekki hlátur í hug- hvæsti framan í vesalings manninn og orgaði á eiginmanninn " Hvað í #$%%&// varstu eiginlega að gera??"
Á eftir bílnum hafði drokkan mín dregist götuna endilanga... fíni fallegi kjóllinn raknaður upp og garnið drulluskítugt!

Eftirmálar urðu þessir: Eiginmaður fyrirgaf mér fljótt fyrir orgið, vesalings maðurinn sem varð vitni að þessu veit nú að ég er með skap, mér rann fljótt reiðin ( eftir að hafa hent garnflækjunni í ruslið) og þess má geta að jólakjólarnir þetta árið hafa nú þegar verið keyptir í Lindex!!

Ég skrapp svo á dögunum í Litlu Prjónabúðina til að skila restinni af garninu sem átti að fara í kjólana (#$&$&W%&#) og fá mér eitthvað annað í staðinn. Ennþá full sjálfsvorkunnar eftir þetta atvik ákvað ég að tríta sjálfa mig og verslaði þetta garn:

Dásamlegt Baby Alpaca sem ég ætla að nota í sjal handa sjálfri mér :)

HP

3 comments:

  1. hhahahahah...snilldin ein !! Sorrí..er bara frekar fyndið :)

    ReplyDelete
  2. Oh ég fer alltaf næstum því að gráta þegar ég rifja þetta upp... þvílíka og aðra eins óheppni hef ég sjaldan heyrt um!
    En iss piss... jólakjólar... JS verður í notuðum kjól af frænku sinni þetta árið og verður svooo fín :)
    knús elskuleg!

    ReplyDelete
  3. ÞETTA ER SVAÐALEGT.
    hahahahhaha.
    Ég hefði grenjað á staðnum, bókað!

    ReplyDelete