Friday, September 28, 2012

Crazy bananas

Í vinnunni minni eru seldir bananar...þessa vikuna hafði salan í þeim verið dræm og þó nokkur slatti sem átti að henda. Mér er afskaplega illa við að sóa mat og tók því með mér helling af bönunum heim. En þá var það spurningin...hvað á ég að gera úr þeim?
Ég surfaði á netinu og endaði á að gera þrenns konar bananamúffur!
Þegar baka á margar tegundir getur verið gott að eiga tvær skálar á Kitchen Aidinn:)

Súkkulaði-bananamúffur frá Nigellu, random netuppskrift og svo haframjöls-bananamúffur örlítið stílfærð uppskrift frá cafesigrún. Haframjölsmúffurnar fengu bestu einkunn frá öllum á heimilinu!

HP 

4 comments:

  1. Ummmmmm ég þarf að gera þessar frá cafésigrun!
    En hvað kom til að þú fórst útí banana bakstur, það er eins og mig minni að þér hafi fundist bananar í bakstri ekki svo mjög góðir :)
    En já þetta með tvær skálar... mig langar einmitt svo agalega í glerskálina, finnst hún svo agalega lekker :)

    ReplyDelete
  2. Heyrðu já ég var sko aldrei fyrir neitt bananabakkelsi- en tímarnir breytast og mennirnir með :)
    Mér finnst hrikalega þægilegt að vera með tvær skálar því að alltaf þegar ég baka þá geri ég mikið í einu!

    ReplyDelete
  3. Mmm...langar líka að prufa þessar haframúffur !!! Talandi um að langa...þá dauðlangar mig í Kitchen aid hrærivél og blandara !! Verð að fara að gifta mig..

    ReplyDelete
  4. Haframjöl alltaf til bóta

    ReplyDelete