Monday, August 27, 2012

Allrahanda

Því verður ekki með orðum lýst hversu mikið ég er að njóta þess að vera í sumarfríi þessa dagana! Hef krúttast hér heima við í dag, prjónað, bakað og hreinsað ískápinn og nú mallar sú hreinsun á eldavélinni í formi dýrðarinnar grænmetissúpu:)
Að öðru:
Ég hef alla tíð verið  með afskaplega leiðinlega húðgerð, hún verður þurr og flekkótt og þolir engan vegin allar gerðir af kremum eða öðrum snyrtivörum. Fór í heilsuhúsið á Selfossi í vetur og festi þar kaup á lífrænum andlitsmaska sem virkar svona líka agalega vel, auk þess sem hann var ódýr!

Frískleg og flekklaus eftir að hafa sett maskann á andlitið  í 10 mín:)
Það er ekkert slæmt að eyða sumarfríinu í að knúsast í þessari!

1 comment: